Verkstæði og viðgerð á Mercedes-Benz

Við þjónustum fólksbíla frá Mercedes-Benz.
Við erum staðsettir á Funahöfða 17, 110 Reykjavík.
Hafðu samband hérna fyrir neðan, hringdu eða komdu við.

D&C ehf. var stofnað af Guðjóni Magnússyni, fyrrum verkstæðisformanni Ræsis, árið 2008.
Við sérhæfum okkur í að þjónusta fólksbíla frá Mercedes Benz.
Hjá okkur starfa sérþjálfaðir bifvélavirkjar.

Opnunartíminn hjá okkur er:

Mán - Fim: 8:00 - 17:00
Fös: 8:00 - 16:00
Lokað er hjá okkur á milli 12 - 13

Allar almennar viðgerðir

Við sjáum um allar almennar viðgerðir, stórar sem smáar.

Þjónustuskoðanir (Service)

Yfirferðir ásamt olíuskiptum og reglulegu viðhaldi á Benz bifreiðum.

Smurning og bremsur

Tökum að okkur að laga bremsur ásamt olíuskiptum á vélum, skiptingum, millikössum og drifum.

Tölvulestur

Erum með tölvu frá Mercedes-Benz sem getur lesið, kóðað og uppfært allar bifreiðar frá Mercedes-Benz.

Rafkerfi og bilanaleit

Tökum að okkur að bilanagreina rafmagnsvandamál og útleiðslur ásamt því að lagfæra rafkerfi.

Hybrid / Rafmagnsbílar

Tökum að okkur viðgerðir og bilanagreiningar á rafmagnsbílum og erum við með sérþjálfaða starfsmenn fyrir þær viðgerðir.